Aðalréttir

Hreindýrasteik

Hráefni

Steikin

  • hreindýrakjöt (Í mínútusteikur.)
  • salt
  • pipar
  • einiber, steytt

Sósan

  • smá gráðostur
  • rjómi
  • maísenamjöl
  • rifsberjahlaup

Aðferð

Steikin

  1. Best er að hafa kjötið sem mínútusteikur, þ.e. þunnar sneiðar sem eru steiktar mjög stutt.
  2. Kryddið með salti, pipar og steyttum einiberjum.
  3. Steikið á mjög heitri pönnu í um 1 mínútu á hvorri hlið og látið kjötið hvíla í smástund.

Sósan

  1. Sósan: setjið rjóma og smá gráðost á pönnuna, kryddið eins og kjötið (salt, pipar, einiber) og sjóðið.
  2. Þykkið með maísenamjöli hrærðu út í smá köldu vatni og bragðbætið með rifsberjahlaupi.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Hreindýrasteik
Best sem mín. steik. salt + pipar einiber. Sósa = sama kryddið smá gráðostur + rjómi soðið maisena + Rifsb. hlaup