Meðlæti, sósur og sultur

Hvítlaukur í ofni og olía

Hún merkti uppskriftina með stjörnu

Ofnhiti
190 °C

Hráefni

  • hvítlauksgeirar, afhýddir (síðast notaði hún 5 stóra hvítlauka)
  • góð olía (nóg til að fljóti yfir)

Aðferð

  1. Raðið afhýddum hvítlauksgeirum í eldfast mót.
  2. Hellið góðri olíu yfir þannig að hún fljóti yfir geirana.
  3. Setjið álpappír yfir mótið.
  4. Bakið við 190°C í 40–50 mínútur á neðstu rim.
  5. Maukið geirana saman við olíuna og frystið í klakaboxum.

Athugasemdir

  • Síðast notaði ég 5 stóra hvítlauka og setti alla geirana í mótið.
  • Hvítlauk í olíu á að geyma í frysti eða í mesta lagi nokkra daga í ísskáp, aldrei við stofuhita.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
* Hvítlaukur (í ofni) + olía
Raða hvítlauksgeirum í eldfast mót, hella góðri olíu yfir svo hún fljóti yfir. Álpappír yfir. 190°C í 40-50 min. mest neðstu rim. (Síðast notaði ég 5 stóra og setti alla geir. í mótið. Nota svo olíu + mix. geir. + olíu! → og frysti í Klakamót