Ís
- Frá
- Heiðar Örn
Hráefni
- 3 eggjarauður
- 3 msk. sykur
- 1 vanillustöng
- 1 bolli rjómi
- pínulítið salt
Aðferð
- Kljúfið vanillustöngina, skafið fræin úr og blandið þeim saman við sykurinn.
- Hitið rjómann vel ásamt vanillusykrinum, saltinu og vanillustönginni.
- Þeytið eggjarauðurnar, en ekki of mikið.
- Hellið heitri rjómablöndunni varlega saman við rauðurnar og þeytið á hálfum hraða á meðan.
- Hitið blönduna aftur við meðalhita (á 6 á hellunni) og hrærið vel á meðan hún þykknar. Látið hana ekki sjóða.
- Takið vanillustöngina úr, kælið blönduna, setjið hana í ísform og frystið.
Eins og hún skrifaði það

Ís — Heiðar Örn.
3 eggjarauður — 3 msk. sykur
1 vanillustöng — 1 L. Rjómi — pínu salt
Hita vel Rjóma + sykur + salt
+ vanillastöng. (klofin og bl. sm.
við sykur. Þeyta Rauður (ekki of
mikið)
hella heitri soppunni varl. sm.
við Rauðurnar, þeyta 1/2 hraða
á meðan. (Hita v/6 hræra vel á
meðan soppan þykknar)
Kæla, setja í ísform, Frysta