Aðalréttir

Kjötfars

Hráefni

  • 500 g lambahakk
  • 2 msk. kartöflumjöl
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. hvítur pipar (Strikið er endurtekningarmerki fyrir 'tsk.'.)
  • 2 tsk. salt
  • 1 tsk. múskat
  • 3–4 dl mjólk

Aðferð

  1. Setjið hakkið og saltið í hrærivélarskál og hrærið þar til hakkið verður seigt.
  2. Bætið kartöflumjöli, lyftidufti, hvítum pipar og múskati út í og hrærið saman við.
  3. Hellið mjólkinni út í smátt og smátt og þeytið farsið vel í hrærivélinni þar til það er stíft og létt.
  4. Mótið bollur með blautri skeið og steikið á pönnu, eða sjóðið, þar til þær eru eldaðar í gegn.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Kjötfars.
500gr Lambahakk 2 msk. Kartöflumjöl 1 tsk. lyftiduft. 1 - hvítur pipar 2 - salt 1 - múskat 3-4 dl. mjólk
stífþeytt í hrærivél.