Piparkökur
- Frá
- Gunna Sig
- Ofnhiti
- 190–200 °C
Hráefni
- 180 g smjör
- 500 g hveiti
- 250 g sykur
- 4 tsk. kanill
- 1 dl sýróp
- 2 tsk. negull
- 1 dl mjólk
- 2 tsk. engifer
- ½ tsk. pipar
- 2 tsk. matarsódi
Aðferð
- Hitið smjör, sykur og sýróp saman í potti þar til smjörið er bráðið og sykurinn uppleystur. Takið af hitanum og hrærið mjólkinni út í.
- Blandið hveiti, kryddi og matarsóda saman, hrærið út í og hnoðið í slétt deig. Pakkið í plast og kælið í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt.
- Hitið ofninn. Fletjið deigið þunnt út og stingið út kökur. Raðið á ofnplötur með bökunarpappír.
- Bakið við 190–200°C í 7–10 mínútur neðst í ofninum.
Eins og hún skrifaði það

Piparkökur (Hús)
(Gunna Sig)
180gr. smjör - 500gr. hveiti
250gr. sykur - 4 tsk. kanill
1 dl. sýróp - 2 tsk. negull
1 dl. mjólk - 2 tsk. engifer
1/2 tsk. pipar - 2 tsk. natron
190°c - 200°c í 7 - 10 min. neðst