Pönnumaturinn
Hráefni
- alls konar kjöt (T.d. afgangar eða kjöt skorið í strimla.)
- smjör
- olía
- rjómi
- sveppir
- paprika (Hér líklega paprikuávöxtur, ekki krydd.)
- laukur
- púrrulaukur
- alls konar krydd
- hrísgrjón
- brauð
- tómatpúrra
- sinnep
- hrásalat
- ostar
Aðferð
- Skerið kjötið í strimla eða bita og steikið í smjöri og olíu á stórri pönnu.
- Bætið lauk, púrrulauk, sveppum og papriku á pönnuna og steikið þar til grænmetið er mjúkt. Kryddið eftir smekk.
- Hrærið tómatpúrru og smá sinnepi saman við, hellið rjóma yfir og látið malla í nokkrar mínútur.
- Berið fram með hrísgrjónum, brauði, hrásalati og ostum.
Eins og hún skrifaði það

Pönnumaturinn
Allsk. kjöt - smjör - olía
Rjómi - sveppir - paprika
laukur - púrra - allsk. krydd
Hrísgrjón - brauð - tómatpuré
sinnep - hrásalat - ostar.