Kökur og tertur

Rabarbarakaka með marsípani

Ofnhiti
200 °C

Hráefni

  • 200 g smjör, mjúkt
  • 200 g sykur
  • 200 g hveiti
  • 150 g marsípan, rifið
  • 3 egg
  • 2 tsk. lyftiduft (Á síðunni stendur „ger“; hér lesið sem lyftiduft (sjá athugasemd).)
  • 1 dl mjólk
  • 2 rabarbaraleggir, góðir, skornir í bita

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 200°C og smyrjið eldfast mót, um 20 cm x 30 cm.
  2. Blandið öllu saman nema rabarbaranum og hrærið vel.
  3. Setjið deigið í eldfasta mótið.
  4. Skerið rabarbarann í bita og stingið þeim ofan í deigið.
  5. Bakið við 200°C þar til kakan er ljósbrún, um 30–40 mínútur.

Athugasemdir

  • Mjög góð.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Rabarbarakaka m/marsipani
(mjög góð)
200gr. smjör - 200gr. sykur - 200gr. hveiti 150gr. Rif. marsipan - 3 egg - 2 tsk. ger 1 dl mjólk - 2 góðir leggir Rabarb.
"Öllu bl. saman og hrært nema Rabarb. Sett í eldfast mót. Rabarb. stungið í deigið. Baka 200°c, þar til ljósbrúnn.