Relish
Hráefni
Grænmetið
- 10 paprikur, fræhreinsaðar, hakkaðar
- 10 laukar, hakkaðir
- 3 agúrkur, hakkaðar
- 1 kg hvítkál, hakkað
- ¼ bolli salt
Lögur
- 3 bollar edik („ediksýra (óbl)“ á síðunni; notið venjulegt edik, um 6%, ekki sterka ediksýru)
- ½ bolli vatn
- 4 bollar sykur
- 2 msk. sinnepsfræ
- 2 msk. sellerýflögur
- ½ tsk. túrmerik
Aðferð
Grænmetið
- Hakkið allt grænmetið, t.d. í hakkavél eða matvinnsluvél.
- Stráið ¼ bolla af salti yfir, blandið og látið standa yfir nótt.
- Daginn eftir: hellið grænmetinu í sigti, skolið það og látið renna vel af því.
Lögur
- Sjóðið allt sem fer í löginn saman í stórum potti.
- Bætið grænmetinu út í og sjóðið í um 5 mínútur.
- Setjið heitt í hrein, heit glös og lokið strax.
Eins og hún skrifaði það

Relish
10papr - 10 laukar - 3 agúrk
1kg. hvítkál → allt hakkað
Hellt yfir 1/4 b salt, látið
liggja yfir nótt
Lögur:
Lögur: 3b. ediksýra ((eða ábl))
1/2 b. vatn - 4b sykur
2msk. sinnepsfræ
2 msk. sellerýflögur
1/2 tsk. Turmerik
Allur lögur soðin, allt
hráefni soðið í ca. 5min
Sett á glös → lokað