Eftirréttir

Sérríbúðingur

Frá
Gunna Sig

Hráefni

  • 4 egg
  • 200 g sykur
  • 2 dl sérrí
  • 10 kokteilber
  • 70 g súkkulaði
  • 9 matarlímsblöð
  • 6 dl rjómi, þeyttur

Aðferð

  1. Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn í 5–10 mínútur.
  2. Skiljið eggin. Þeytið eggjarauðurnar og sykurinn þar til blandan er ljós og þykk. Stífþeytið hvíturnar sér.
  3. Hitið helminginn af sérríinu, kreistið vatnið úr matarlíminu og bræðið það í heitu sérríinu. Bætið afganginum af sérríinu út í og hellið í mjórri bunu út í eggjarauðublönduna á meðan hrært er.
  4. Þegar blandan fer að þykkna er þeytta rjómanum blandað varlega saman við og síðan eggjahvítunum.
  5. Hellið í skál og kælið í að minnsta kosti 3–4 klukkustundir, þar til búðingurinn hefur stífnað.
  6. Skreytið með kokteilberjum og söxuðu eða rifnu súkkulaði.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Serrýbúðingur
(Gunna Sig)
4 egg — 200 gr. sykur — 2 dl. serrý 10 koktailber — 70 gr. súkkul. 9 blöð matarlím — 6 dl. þeyttur Rjómi