Shepherd's pie
Hún merkti uppskriftina með stjörnu
- Ofnhiti
- 200 °C
Hráefni
Kjötið
- 1½ kg lambahakk
- 3 laukar, stórir, saxaðir
- 5 gulrætur, saxaðar
- 5 sellerístilkar, saxaðir
- 4 hvítlauksgeirar, saxaður
- 4 msk. hveiti
- 1 dós tómatpúrra
- 500 ml nautasoð
- 6–7 nautakraftsteningar
- 80 ml Worcestershire-sósa
- salt, ef þarf
- 220 ml rauðvín
- 5 tsk. timían, þurrkað
- 4 tsk. rósmarín, þurrkað
- 3 tsk. svartur pipar
- grænar baunir, frosnar
Kartöflumús
- kartöflur
- mjólk
- smjör
- pipar
- salt
- smá sykur
- cheddar- eða parmesanostur, rifinn
Aðferð
Kjötið
- Steikið hakkið vel á stórri pönnu eða í potti ásamt lauk, gulrótum, sellerí og hvítlauk. Hrærið hveitinu og tómatpúrrunni saman við og steikið áfram í smástund.
- Hellið soðinu, rauðvíninu og Worcestershire-sósunni út í, myljið kraftteningana saman við og kryddið með timíani, rósmaríni og pipar. Bætið frosnu baununum út í.
- Látið allt malla í um 20 mínútur. Smakkið til og saltið ef þarf.
Kartöflumús
- Sjóðið kartöflurnar, flysjið og stappið með mjólk og smjöri. Kryddið með pipar, salti og smá sykri.
- Setjið kjötið í eldfast mót.
- Jafnið kartöflumúsinni yfir og stráið rifnum osti yfir.
- Bakið við 200°C í um 30 mínútur eða lengur, þar til yfirborðið er gullinbrúnt.
Eins og hún skrifaði það

Sheppards pie.
★
1.5kg. lambahakk - 3 stórir laukar
5 gulrætur - 5 selleystilkar
4 hvítlauksrif + 4 msk. hveiti
og 1 dós Tómatpaste → steikja vel
500ml. Beef broth + 6-7 teningar beef
80 ml. Worsauce - (Salt ef þarf.)
420 ml Rauðvín - 5 tsk. Thyme
4 tsk. Rosemary - 3 tsk sv. pipar
Frosnar baunir. Láta allt malla
í ca. 20 min.
Kart. mús:
Kartöflur - mjólk
smjör - Pipar + salt (smá sykur)
Cheddar eða parmesanost Rifin
Allt sett í eldfast mót.
Kartöflumúsin jöfnuð yfir
200°c í ca. 30 min. +