Brauð og bakstur

Skonsur

Hráefni

  • 500 g hveiti
  • 5 tsk. lyftiduft (um 24 g)
  • 1½ tsk. salt
  • 4 egg
  • 100 g sykur
  • 6 dl mjólk

Aðferð

  1. Blandið hveiti, lyftidufti, salti og sykri saman í skál.
  2. Pískið eggin og mjólkina saman og hrærið út í þurrefnin þar til deigið er slétt og frekar þykkt.
  3. Hitið pönnu á hita 8 á hellunni.
  4. Hellið deiginu á pönnuna með stóru ausunni, einni ausu í hverja skonsu.
  5. Steikið þar til loftbólur koma í yfirborðið og kantarnir stífna, snúið þá við og steikið hina hliðina þar til hún er ljósbrún.

Aðrar stærðir

1½ uppskrift

  • 750 g hveiti
  • 36 g lyftiduft
  • 2 tsk. salt
  • 6 egg
  • 150 g sykur
  • 9 dl mjólk

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
litla gamla ausan milli. Stóra nýja ausan
Skonsur
500gr. 750 Hveiti - 5tsk. 36 (24gr) lyftiduft 1 1/2 tsk. +2 10gr salt - 4egg 6 - 100gr. 150 sykur 6dl. 9dl. mjólk
Hiti 8 næst stærsta ausan; stóra