Slummuterta
- Frá
- Ásthildur
Hráefni
Krem
- 150–200 g súkkulaði
- 3 msk. vatn, heitt
- 3 eggjarauður
- 2 msk. flórsykur
- ca. 1 dl rjómi, þeyttur
Samsetning
- hvítur svampbotn
- hvítur marengsbotn
- ½ l rjómi, þeyttur
Aðferð
Krem
- Setjið súkkulaðið og heita vatnið í pott og bræðið við vægan hita.
- Látið kólna aðeins.
- Þeytið eggjarauðurnar og flórsykurinn saman við súkkulaðið.
- Blandið síðast um 1 dl af þeyttum rjóma saman við.
Samsetning
- Botnarnir eru settir saman með kremi og rjóma á eftirfarandi hátt.
- Smyrjið hluta af kreminu á svampbotninn.
- Setjið svo þeyttan rjóma ofan á og marengsbotninn þar ofan á.
- Smyrjið restinni af þeytta rjómanum ofan á marengsbotninn.
- Hellið að lokum restinni af kreminu yfir.
Eins og hún skrifaði það

Slummuterta
(Ásthildur)
Hvítur botn + hvítur marengsb.
settir saman með kremi og
Rjóma
Krem:
150-200gr. súkkul. ) Sett í pott
3 msk. heitt vatn ) og brætt
Kælt. Tvær þrjár eggjarauður + 2 msk. flórs. þeyttar
saman við súkkul. síðast ca. 1 dl.
þ. Rjómi. Krem smurt á svampbotn.
svo þeyttur Rjómi -> marengsbotn,
rest af þeytta Rjómanum (1/2 l.)
svo rest af kremi hellt yfir.