Meðlæti, sósur og sultur

Tómatsalat

Heimild
Dagblaðsúrklippa (nafn blaðsins kemur ekki fram á úrklippunni)

Hráefni

  • 1 rauðlaukur, lítill, skorinn í þunnar sneiðar
  • ½ tsk. súmak
  • 1 msk. sítrónusafi, nýkreistur
  • 450 g kokteiltómatar
  • ca. ⅛ tsk. svartur pipar, nýmalaður
  • ca. ½ tsk. sjávarsalt
  • 1–2 msk. basilíkulauf, skorin

Aðferð

  1. Blandið lauksneiðunum saman við súmakið og sítrónusafann í skál og leyfið þeim að mýkjast í 5–10 mínútur.
  2. Helmingið tómatana og veltið þeim saman við laukinn ásamt basilíkunni.
  3. Saltið og piprið eftir smekk og geymið salatið þar til það er borið fram.