Vanilluhringir
- Ofnhiti
- 200 °C
Hráefni
- 250 g hveiti
- 50 g kartöflumjöl
- 125 g flórsykur
- 190 g smjör
- ½–1 egg
- 2 tsk. vanilludropar
Aðferð
- Hitið ofninn í 200°C og leggið bökunarpappír á ofnplötur.
- Blandið saman hveiti, kartöflumjöli og flórsykri. Myljið smjörið út í og bætið egginu og vanilludropunum við. Hnoðið í slétt deig; notið hálft til eitt egg eftir því hve deigið er þurrt.
- Setjið deigið í hakkavél eða smákökusprautu með stjörnuskífu, skerið lengjurnar í um 8 cm búta og mótið hringi. Raðið á plöturnar.
- Bakið við 200°C í 7–10 mínútur ofarlega í ofninum.
Eins og hún skrifaði það

Vanilluhringir
250gr. hveiti - 50gr. kartöflumjöl
125gr. flórsykur - 190gr. smjör
1/2-1 egg - 2 tsk. Vanilludr.
200°c í 7-10 min. ofarlega
í ofninum.