Brauð og bakstur

Vöfflur

Hráefni

  • 600 g hveiti (um 4 bollar)
  • 35 g sykur (um 4 msk.)
  • 3 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. kanill
  • 1 tsk. salt
  • 7 dl mjólk (um 3 bollar)
  • 3 egg
  • 200 g smjör, brætt

Aðferð

  1. Bræðið smjörið og látið það kólna aðeins.
  2. Blandið hveiti, sykri, lyftidufti, kanil og salti saman í skál.
  3. Pískið eggin og mjólkina saman og hrærið út í þurrefnin þar til deigið er kekkjalaust. Hrærið að lokum bræddu smjörinu saman við.
  4. Hitið vöfflujárnið, hellið deigi í það með ausu og bakið þar til vafflan er gullin.

Athugasemdir

  • Notið millistóru nýju ausuna (í stað litlu gömlu ausunnar).

Aðrar stærðir

1½ uppskrift

  • 900 g hveiti
  • 65 g sykur
  • 4½ tsk. lyftiduft
  • 1½ tsk. kanill
  • 1½ tsk. salt
  • 10–11 dl mjólk
  • 4–5 egg
  • 300 g smjör, brætt

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Vöfflur.
600gr. 900 (4b) Hveiti - 35gr. 65 (4msk) sykur 3tsk. 4 1/2 lyftiduft - 1tsk. 1 1/2 kanill 1tsk. 1 1/2 salt - 7dl. 10-11 (3b) mjólk 3egg 4-5 - 200gr. 300 brætt smjör